Í gær veitti KKÍ verðlaun fyrir frammistöðu á seinni hluta Iceland Express-deildarinnar í körfubolta.
Haukar áttu þar tvo fulltrúa en Slavica Dimvoska var í úrvalsliðinu ásamt því að hún var valin besti leikmaðurinn. Yngvi Gunnlaugsson þjálfari Hauka var valinn besti þjálfarinn á seinni hlutanum.
Þetta er án efa gott veganesti inn í úrslitakeppnina en undanúrslit hefjast í kvöld en þá taka Haukar á móti Hamri á Ásvöllum.
Allir á völlinn!!!!
Áfram Haukar
Mynd: Úrvalslið seinni hluta Iceland Express-deildarinnar – kki.is