Kristinn Jónasson nýr formaður kkd. Hauka

Kristinn Jónasson var kjörinn formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka á auka aðalfundi deildarinnar á dögunum. Kristinn, sem er fyrrverandi leikmaður mfl. karla, tekur við af Braga Magnússyni sem lét af formennsku fyrr í vetur. Aðrar breytingar á stjórn deildarinnar voru þær að Emil Örn Sigurðarson og Tobías Sveinbjörnsson gengur úr stjórn ásamt Braga sem hætti fyrr í […]

Stuðningsmannakvöld knattspyrnudeildar Hauka

Stuðningsmannakvöld Hauka 30.apríl

Það verður sannkölluð Haukaveisla 30.apríl þar sem knattspyrnudeild Hauka ætlar að halda alvöru teiti. Húsið opnar 19:30 og dagskrá hefst í kringum 20:00 og er frítt inn!! Dagskrá:  Leikmannakynningar  Viðtöl við þjálfarateymi meistaraflokks karla og kvenna þar sem farið verður yfir komandi tímabil Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og margfaldur Íslandsmeistari mætir og segir m.a. frá […]

Gleðilegt sumar

Í dag fögnum við fyrsta degi sumars. Dagurinn tekur vel á móti okkur með blíðu og fallegu veðri. Vetur er að baki og ævintýri sumarsins eru á næsta leyti. Haukar munu í sumar bjóða upp á margvísleg spennandi námskeið í hinum ýmsu íþróttagreinum. Við horfum líka til íþróttastarfs vetrarins og metum árangur og þær væntingar […]

Dregið í happdrætti kkd. Hauka

Búið er að draga í happdrætti Körfuknattleiksdeildarinnar. Vinningar verða afhentir í anddyri íþróttamiðstöðvar Hauka að Ásvöllum mánudaginn 29. apríl frá 16:00-18:00. Síðasti dagur til að vitja vinninga er 30. maí. 1. Postulínskróna á endajaxl frá Tannlæknastofu Kjartans Þorgeirssonar 200.000 Númer 953 2. Samsung 55″ sjónvarp 114.990 Númer 1889 3. Helgarleiga á Huyndai Tucson frá AVIS […]

Hergeir Grímsson til liðs við Hauka

Hergeir Grímsson gengur til liðs við Hauka að lokinni yfirstandandi leiktíð frá Stjörnunni. Hergeir skrifaði undir tveggja ára samning við Hauka. Hergeir sem er 27 ára gamall er uppalinn Selfyssingur og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2019 eftir spennandi úrslitarimmu við Hauka það árið. Hergeir lék með yngri landsliðum Íslands og hefur verið í lykilhlutverki […]

12. APRÍL – AFMÆLISKAFFI

12. apríl 1931 komu 13 ungir piltar saman og stofnuðu íþróttafélag – Knattspyrnufélagið Hauka. Í tilefni þess fögnum við nú 93ja ára afmæli félagsins með lítilli veislu á föstudaginn frá kl. 16 – 18 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar. Allir hjartanlega velkomnir ! Áfram Haukar !