Sunna Líf endurnýjar samning við knattspyrnudeild Hauka

Sunna Líf Þorbjörnsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka en hún er ein af okkar efnilegu uppöldu leikmönnum sem mun spila í Pepsí deildinni í sumar. Nýr samningur gildir til 31. desember 2018. Sunna, sem er á 18. aldursári, á að baki 12 leiki með meistaraflokki kvenna og hefur skorað eitt mark. Knattspyrnudeild Hauka […]

Meistaraflokkur kvenna fær liðsstyrk fyrir Pepsí

Knattspyrnudeild Hauka hefur hlotið góðan liðsstyrk þar sem Eva María Jónsdóttir og Theodóra Dís Jónsdóttir hafa gengið til liðs við meistaraflokk kvenna. Báðar koma þær á láni til Hauka. Eva María sem er sóknarmaður er á 18. aldursári og er uppalin í Val en hún lék  12 leiki með KH í 1. deildinni og Borgunarbikarnum […]

SKEMMTILEGT SUMAR FRAMUNDAN MEÐ HAUKUM Í PEPSÍ

Pepsí 2017 er að bresta á. Haukar spila í Pepsí deild kvenna í sumar eftir magnaðan árangur síðasta sumar er liðið tryggði sér sigur í 1. deildinni. Að við höfum komist upp um deild og hvað þá unnið deildina kom mörgum knattspyrnuspekingum á óvart þar sem við vorum með fremur ungt lið og óþekkta leikmenn. […]

Hildigunnur og Sæunn endurnýja samninga við knattspyrnudeild Hauka

Hildigunnur Ólafsdóttir og Sæunn Björnsdóttir, leikmenn meistaraflokks kvenna, hafa skrifað undir samninga við knattspyrnudeild Hauka sem gilda til 31. desember 2018. Hildigunnur, sem spilar jafnan á kantinum eða sem framherji, hefur leikið 70 leiki með meistaraflokki kvenna og skorað 29 mörk. Hildigunnur er 24 ára gömul og er ein af reynsluboltum liðsins en hún spilaði […]

Lykilleikmenn framlengja við Hauka

Lykilleikmenn framlengja við Hauka Það eru þeir Tjörvi Þorgeirsson, leikstjórnandi, Jón Þorbjörn Jóhannsson og Heimir Óli Heimisson, línumenn og varnarjaxlar, Grétar Ari Guðjónsson og Andri Scheving, markverðir, sem hafa allir skrifað undir nýja samninga við Hauka.

Þórdís Elva undirritar nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka

Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna, hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka. Samningurinn gildir til 31. desember 2018. Þórdís, sem verður 17 ára í september á þessu ári, var lykil leikmaður í liði Hauka á síðasta keppnistímabili sem tryggði sér sæti í Pepsí deildinni sem hefst nk. fimmtudag. Hún á að baki 22 leiki […]