Keflavík – Haukar í Dominos deild karla í kvöld

Haukar fara suður með sjó í kvöld og munu etja kappi við Keflvíkinga kl. 19:15 í kvöld. Leikurinn er gríðarleglega mikilvægur þar sem Haukaliðið er í bullandi fallbaráttu og þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Haukar unnu Keflvíkinga örugglega í Schenkerhöllinni en Keflvíkingar eru ávalt sterkir á heimavelli og ljóst er að þetta verður erfiður […]

Haukar – Fram á morgun – Bikarsaga Haukastúlkna skoðuð

Annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 19:30 leika Haukastelpur í undaúrslitum Coca-cola bikarsins þegar að liðið mætir Fram. Fjórða árið í röð eru Haukastúlkur komnar í undanúrslit efirr að leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem undanúrslitin eru einnig leikin í Laugardalshöll. Áður var það þannig að aðeins úrslitaleikurinn var leikinn í höllinni og hafa Haukastelpur komist í […]

Forsala miða á Final4

Það styttist í stóru stundina en um helgina leika m.fl. karla og kvenna í undan úrslitum Coca Cola bikarsins. Forsala miða er í fullum gangi og er hægt að kaupa miða í forsölu á Ásvöllum. Við hvetjum alla til að kaupa miða í forsölu því þá rennur allur ágóði til Hauka. Stelpurnar hefja leik á […]

Aðalfundir

Aðalfundir deilda verða sem hér segir: Körfuknattleiksdeild: Mánudag 27. febrúar kl. 18 í Forsal Knattspyrnudeild:  Miðvikudag 1.mars kl. 18 í Forsal Handknattleiksdeild: þriðjudaginn 28. febrúar kl. 18:15 í Forsal Aðalfundur félagsins: Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn mánudaginn 6. mars kl. 18 í Forsal. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins Félagar eru hvattir til að mæta.

Mikilvægur heimaleikur í kvöld í Dominos deild karla Haukar – Njarðvík

Í kvöld, sunnudaginn 19. febrúar, koma Njarðvíkingar í heimsókn í Schenkerhöllina og hefst leikurinn kl. 19:15. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Haukaliðið, en liðið er sem stendur í harðri fallbaráttu og þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Liðið tapaði illa í síðasta leik á móti ÍR á útivelli og eru allir staðráðnir í því að […]

Tori Ornela semur við Hauka

Bandaríski markvörðurinn Tori Ornela hefur skrifað undir samning um að spila með Haukum í Pepsí deild kvenna í sumar. Tori, sem er fædd árið 1992, spilaði síðasta sumar með FC Indiana í Women´s Premier Soccer Legaue (WPSL) og var valin leikmaður tímabilsins hjá sínu félagi. Hún spilaði í sömu deild árið 2015 og þá með […]

Haukar – Selfoss á föstudaginn kl. 19:30

Það verður stórleikur í Schenkerhöllinni að Ásvöllum þegar strákarnir í meistaraflokki fá Selfyssinga í heimsókn aðra vikuna í röð! Nú er það Olísdeildin og skiptir það gríðarlega miklu máli að taka 2 stig úr leiknum. Mætum á völlinn – Áfram Haukar