Mót hjá 5. fl karla um helgina

Um helgina verður haldið mót hjá 5.fl. karla á Ásvöllum. Nánari upplýsingar og úrslit á mótinu er að finna á yngri flokka síðunni undir mót eða bara með því að smella hér.

Tvö töp

Ekki höluðu liðin okkar inn stigum um helgina. Bæði lið máttu þola tap, stelpurnar 27-23 fyrir Val á Hlíðarenda og strákarnir 28-25 fyrir GróttuKR á Nesinu.

Haukar-Víkingur ESSO deild karla

Strákarnir okkar gjörsigruðu lið Víkings á Ásvöllum í kvöld 38-16 og byrjuðu aldeilis vel eftir langt frí. Gífurlegur getumunur var á liðunum og leikurinn langt frá því að vera spennandi en strákarnir okkar héldu áhorfendum vakandi og skoruðu fjöldan allan af glæsilegum mörkum. Haukarnir byrjuðu af krafti og gáfu tóninn og komust í 10-0. Gestirnir […]

Haukar í horni

Minnum á fundinn í kvöld kl. 20.00 hjá Haukum í horni. Viggó og strákarnir okkar verða á staðnum.

FH-HAUKAR Undanúrsl. SS bikarsins

Í kvöld tryggðu stelpurnar okkar sér ferð í bikarúrslitin í Höllinni er þær unnu frábæran sigur á nágrönnunum úr FH, 25-30. Báðum liðum gekk illa að skora í byrjun, mikil bikarspenna og mikið um mistök. Staðan var 1-1 eftir um 6 mín. leik. Fimleikadömur komust í 3-1 og ekkert virtist ganga hjá okkur. Þær náðu […]

FH-Haukar SS-Bikar kvenna

Minnum á leikinn hjá stelpunum í kvöld sem er kl.20:00 en ekki 18:00. Oft er þörf en nú er nauðsyn að vinna leikinn í kvöld til þess að við Haukafólk eigum lið í úrslitaleiknum í Höllinni laugardaginn 22. febrúar. Nú mæta allir og styðja stelpurnar áfram. Áfram Haukar.