Seinni pistill frá León

Morguninn tók fallega á móti liðinu með sól og hita. Haldið var í íþróttahúsið upp úr kl 11. Strax mátti finna taugatitring í fólki og spennu. Öll umgjörð um leikinn var til fyrirmyndar og ekkert virtist vanta á stemminguna hjá okkar liði. Leikurinn byrjaði vel og okkar menn héldu jöfnu og börðust eins og ljón. […]

Ademar – Haukar

Jæja nú er leikurinn byrjaður og voru strákarnir víst vel stemmdir. Staðan verður sett inn í þessa frétt jafnóðum svo þið getið fylgst með, það eina sem þarf að gera er að endurhlaða síðuna. Það er hægt að gera með því að smella á F5 takkann á lyklaborðinu. Byrjar vel, 3 – 3 eftir 10mín […]

Pistill frá León.

Það voru þreyttir Haukamenn sem skriðu inn á Hótel Conde Luna í León kl. 01:15 að staðartíma í nótt sem leið. Ferðalagið gekk fínt en 5 tíma stopp í London og 4 tíma rútuferð frá Bilbao til León tók sinn toll. Viðtökur og allur aðbúnaður hér hefur verið til fyrirmyndar. Strákarnir æfðu í höllinni fyrr […]

Haukar – Ademar

Athygli er vakin á því að leikurinn á morgun hefst kl.11:30 að ÍSLENSKUM tíma en ekki 13:30 eins og áður var sagt. Fylgist með því leikurinn verður uppfærður hér jafnóðum og mjög líklega koma myndir frá strákunum í dag og/eða á morgun.

Ademar-Haukar Evrópukeppnin

Strákarnir lögðu af stað núna í morgun til Leon á Spáni í leikinn við Ademar í Evrópukeppninni. Upp úr klukkan sex fóru þeir héðan úr Hafnarfirði til Keflavíkur og fljúga þaðan til London. Í London bíða þeir fram eftir degi og fljúga þaðan rétt fyrir klukkan sex . Áætluð lending í Bilbao eru um hálf […]

Haukar – FH ESSÓ deild karla

Strákarnir unnu glæsilegan og öruggan sigur 27-19 á Fimleikafélaginu á Ásvöllum í gærkvöldi. Leikurinn varð aldrei spennandi, þvílíkir voru yfirburðir okkar manna. Birkir Ívar var bestur okkar manna með 21 bolta varinn og þar af eitt víti. Vörnin var góð og sóknin ákveðin. Það var aldrei spurning um hvernig þessi leikur myndi fara, hrein einstefna. […]