Landsliðshópurinn

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið A-landsliðið í handknattleik sem fer á fjögurra landa mótið í Danmörku um helgina. Markverðir: Bjarni Frostason Haukar Hreiðar Guðmundsson ÍR Hlynur Morthens Grótta/KR Hornamenn og línumenn Guðjón Valur Sigurðsson TUSEM Essen Gústaf Bjarnason GWD Minden Einar Örn Jónsson Haukar Sigfús Sigurðsson Valur Róbert Sighvatsson HSG Duesseldorf Gylfi Gylfason HSG Duesseldorf […]

Selfoss-Haukar mfl.ka.

Strákarnir unnu Selfoss 28-32 á Selfossi í gærkvöldi. Um hörkuleik var að ræða, Selfyssingar komust marki yfir seinni hluta leiks, en þá sýndu okkar menn hvað þeir geta og skoruðu nokkur mörk í röð og unnu leikinn með 4 mörkum. Þeir tróna því enn langefstir á toppi Esso-deildarinnar.

Valur-Haukar mfl.kv.

Stelpurnar unnu góðan sigur á Val á Hlíðarenda í gær 29-24. Staðan í hálfleik var 10-17 fyrir okkur. Munurinn varð mestur 10 eða 12 mörk í seinni hálfleik en okkar stelpur gáfu aðeins eftir síðustu mínútur leiksins. Frábær sigur og styrkir liðið enn frekar á toppi Essó-deildarinnar. Thelma og Harpa voru markahæstar með 8 mörk […]

Haukar-ÍR mfl.ka.

Strákarnir okkar náðu að merja sigur á ÍR 23-22. Haukarnir voru þrisvar yfir í leiknum 1-0, síðan 22-21 og í leikslok 23-22. Seinni hluta síðari hálfleiks náðu strákarnir að rífa upp baráttu í vörninni með góðri hjálp dyggra stuðningsmanna og jafna og komast yfir og vinna stigin tvö. ÍR ingar börðust vel allan tímann en […]

Haukar – ÍR hálfleikur

Staðan í hálfleik er 13-14 fyrir gestina eftir að þeir náðu mest 3 marka forystu. Baráttuglaðir Breiðhyltingar hafa leitt leikinn gegn arfaslökum Haukamönnum. Einar Hólmgeirsson er markahæstur gestanna að vanda með 7 mörk á meðan fyrirliðinn Halldór Ingólfsson er markahæstur heimamanna.

Haukar-ÍR mfl.ka.

Misskilings hefur gætt á leiktíma Hauka gegn ÍR í Essó-deild karla, þar sem útgefið var að leikurinn skildi leikinn þriðjudaginn 5. mars. Leiðréttist það hér með, leikurinn fer fram miðvikudaginn 6. mars kl. 20.00 á Ásvöllum. Leikurinn er ágóðaleikur vegna söfnunar Geðhjálpar þar sem allur aðgangseyrir rennur óskiptur til þessa góða málefnis að lágmarki kr. […]

FH-Haukar mfl.ka.

Strákarnir okkar unnu sigur á nágrönnum okkar í fimleikafélaginu í Krikanum í kvöld. Leikurinn endaði 26-27, staðan í hálfleik var 13-12 fyrir FH. Haukarnir áttu frekar slakan dag en gerðu það sem til þurfti og náðu í tvo góð stig.