Ísland – Bosnía

Nú styttist í loka leik Íslenska karlalandsliðsins í körfubolta í undankeppni Eurobasket fyrir EM 2015. Íslenska liðið getur með sigri gulltryggt sig inn á mótið en sex af sjö bestu árangrum liða sem lenda í öðru sæti taka þátt á næsta ári.

Þetta er mikið reiknilíkan sem ekki verður farið yfir hér en sigri Ísland leikinn með meira en 11 stigum enda þeir í efsta sæti riðilsins.

Búist er við að uppselt verði á leikinn og því fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða