Þriðji sigurinn í röð hjá strákunum.

Aron skoraði tvö mörk í gær.

Aron skoraði tvö mörk í gær.

Haukar unnu sinn þriðja leik í röð þegar liðið sigraði Þór frá Akureyri 3-2 í Inkasso deildinni. Gunnar Gunnarsson, sem var valinn maður leiksins af meistaraflokksráði Hauka, gerði fyrsta mark leiksins og þá skoraði Aron JP tvö mörk, þar af annað úr víti.

Með sigrinum eru okkar strákar komnir í 7. sæti deildarinnar með 20 stig, jafn mörg stig og Selfoss sem sitja í 6. sætinu. Þórsarar eru í 5. sætinu með 22 stig.

Næsti leikur Hauka verður á þriðjudag gegn Huginn á Seyðisfjarðarvelli.