Stórleikur í Dominos kvenna í kvöld, Keflavík – Haukar

Kvenna lið Hauka í Dominos deildinni spilar gríðarlega mikilvægan leik við Íslandsmeistara Keflavíkur í kvöld, miðvikudaginn 13 des., kl. 19:15 í Reykjanesbæ.

Deildin er gríðarlega jöfn og hver leikur skiptir miklu máli til að eiga sem mesta möguleik á sæti í úrslitakeppninni í vor. Lið Keflavíkur byrjaði tímabilið frekar illa en hafa verið að ná vopnum sínum aftur og hafa núna unnið fjóra leiki í röð og hafa verið mjög sannfærandi.
Haukaliðið náði að rétta úr kútnum í síðasta leik eftir þrjá tapleiki í röð. Þær gjörsigruðu Breiðablik og spiluðu gríðarlega vel, voru ákveðnar í sókn og vörn og gleðin var í fyrirrúmi í leiknum.

Nú þarf bara að halda áfram að berjast og ná í mikilvægan sigur, komast í annað sætið í deildinni og gera harða atlögu að efsta sætinu.

Áfram Haukar.