Stjórn kkd. Hauka þakkar fyrir

Mynd: Bára Dröfn

Stjórn KKD. Hauka vill koma á framfæri þakklæti til þjálfarateymis og starfsmanna liðs Grindavíkur í bikarleik liðana í gærkvöld. Þegar leikmaður Hauka, Þóra Kristín Jónsdóttir, meiddist undir lok leiks stukku þessir aðila inná völlinn og hlúðu að Þóru, sýndu þeir af sér mikla fagmennsku og samhug.

Meiðsli Þóru eru að öllum líkindum ekki eins alvarleg og var í fyrstu talið en stjórnin vill nota tækifærið og óska Þóru góðan bata.

Áfram Haukar.