Sex úr Haukum á úrtaksæfingar U15 og U16 kvenna

Þær Berglind Þrastardóttir og Viktoría Diljá Halldórsdóttir hafa verið valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum U15 kvenna dagana 22.-24. febrúar nk.  Lúðvík Gunnarsson er landsliðsþjálfari U15 kvenna. Hægt er að sjá hópinn með því að smella hér.

Þá voru þær Berghildur Björt Egilsdóttir, Elín Björg Símonardóttir, Erla Sól Vigfúsdóttir og Mikaela Nótt Pétursdóttir valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum U16 kvenna sömu daga. Jörundur Áki Sveinsson er landsliðsþjálfari U16 kvenna. Hægt er að sjá hópinn með því að smella hér.

Knattspyrnudeild Hauka óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis.

Áfram Haukar. Félagið mitt.

Viktoría Diljá Halldórsdóttir

Berglind Þrastardóttir og Mikaela Nótt Pétursdóttir

Erla Sól Vigfúsdóttir, Elín Björg Símonardóttir og Berghildur Björt Egilsdóttir.