Maltbikar karla í dag kl. 16:00 í Keflavík, Keflavík – Haukar

Gríðarlega mikilvægur leikur er hjá mfl. karla í 8 liða úrslitum Maltbikarsins i dag kl. 16:00 á móti Keflavík á útivelli. Með sigri tryggir sigurliðið sig i Höllina í úrslitahelgina í janúar.

Haukaliðið hefur verið að spila gríðarlega vel síðustu leiki og hafa núna unið 5 leiki í röð og hafa tyllt sér á topp Dominos deild karla. Það telur þó lítið í þessum leik þar sem nú þurfa strákarnir að koma gríðarlega einbeittir til leiks og tryggja sig í Höllina.

Keflavíkurliðið hefur verið svolítið upp og niður og töpuðu síðasta leik sínum í deildinni á heimavelli á móti Stjörnunni og má því búast við því að þeir mæti brjálaðir til leiks og vilji sína sínu stuðningsfólki að liði sé mun betra en það sýndi í síðasta leik, til mikils er að vinna.
Keflvíkinga lögðu lið Hauka í Dominos deildinni á Ásvöllum og sýndu þar styrk sinn og því má búast við hörku leik í dag.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn og styðja strákana áfram í þessum mikilvæga leik.

Áfram Haukar.