Lovísa spilaði sinn fyrsta leik

Hin 14 ára gamla Lovísa Björt Henningsdóttir var í leikmannahópi Hauka sem mætti Snæfelli í gær í IE-deild kvenna. Er þetta í fyrsta skipti sem að Lovísa er í leikmannahópnum en hún kom ekki inn á.

Heimasíðan spjallaði við hana og sagði hún í samtali við hana að það hafi verið mjög gaman og rosaleg upplifun að vera í hópnum. Aðspurð hvort að það hefði ekki verið skandall að vera ekki sett inn á þar sem hún er í klíkunni , en Lovísa er dóttir Hennings þjálfara, sagðist Lovísa hreinlega ekki skilja þetta.