Horfðu á EM2016 og styrktu Hauka í leiðinni!

haukar_midEM 2016 hefst í Frakklandi 10. júní nk. Mótið er vafalaust stærsti íþróttaviðburður Íslendinga frá upphafi. Góður árangur Íslands er fyrst og fremst ávöxtur knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi og þeirra fjölmörgu félagsliða sem hafa fóstrað leikmenn landsliðsins.

Leikir Íslands verða í opinni dagskrá en Síminn býður áskrift að öllu mótinu – alls 51 leik – á 6.900 krónur. Gummi Ben lýsir lykilleikjum mótsins hjá Símanum og Þorsteinn J. tekur púlsinn á þjóðinni daglega svo það má búast við toppstemningu.
Þeir sem kaupa áskrift fyrir 31. maí geta látið 500 kr. af áskriftarverðinu renna til Hauka og eiga kost á því að vinna ferð fyrir tvo á leik Íslands gegn Austurríki.

Farðu inn á https://www.siminn.is/em2016/ og styrktu Hauka!