Helena, Kári og Þóra ofarlega í vali á körfuknattleiksfólki ársins

Val á körfuknattleiksfólki ársins á vegum KKÍ fór fram á dögunum þar sem þau Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir þóttu hlutskörpust.  Fulltrúar í valinu eru stjórn KKÍ, starfsmenn sambandsins, afreksnefnd og landsliðsþjálfarar allra landsliða KKÍ á árinu 2018.

Okkar fólk var áberandi í valinu en Helena Sverrisdóttir var önnur á eftir Hildi og Þóra Kristín Jónsdóttir þriðja. Þá var Kári Jónsson ofarlega í valinu hjá körlunum.

Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.