Haukar taka á móti Víking Ólafsvík á Ásvöllum á morgun

Haukar taka á móti Víking Ólafsvík í fjórðu umferð Inkasso

deildarinnar á morgun.

Liðin eru í fjórða og fimmta sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru búnar og deila þau sama stigafjölda sem eru fjögur stig. Því má gera ráð fyrir að bæði lið geri allt til þess að sækja sigur á morgun.

Leikurinn hefst klukkan 18:30 á Ásvöllum og við hvetjum alla Haukamenn nær og fjær að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs.

Áfram Haukar!

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net