Haukar – Haukar b í 16 liða úrslitum Maltbikarsins – Frítt inn í boði H-Bergs

logoHaukar mæta Haukum b í 16 liða úrslitum Maltbikars KKÍ í dag, laugardag, kl. 17:00 í Schenkerhöllinni.

Frítt er á leikinn í boðið H-Bergs og hvetjum við allt Haukafólk til að mæta og taka þátt í skemmtuninni. B liðið hefur verið duglegt að búa til skemmtilegar auglýsingar og ætla sér stóra hluti í leiknum og ætla sér í 8 liða úrslit.

Eins og áður segir, hefst leikurinn kl. 17:00 og á eftir verður bjórhátíð í forsal Veislusalsins í Schenkerhöllinni og hvetjum við allt Haukafólk til að mæta á staðinn og byrja aðventuna með krafti.

Áfram Haukar