Haukamótið í golfi 2017

haukar logoVerður haldið á Hvaleyrarvellinum föstudaginn 1. sept. nk.

Keppt er um Haukaskjöldinn í höggleik án forgjafar.

Keppt er um Rauða Jakkann og titilinn Öldungameistari Hauka í punktakeppni til minningar um Ólaf H. Ólafsson.

Hámarksforgjöf kvenna er 28 og karla 24.

Konur leika af rauðum teigum og karlar af gulum teigum.

Nándarverðlaun verða veitt á par 3 brautum vallarins.

Þátttökugjald er kr. 5000.

Dregið verður úr skorkortum þeirra sem ekki hljóta verðlaun í mótinu.

Aldurstakmark er 18 ár. Skráning er á golf.is

Verðlaunaafhending verður kl. 20 í Golfskálanum.

Haukafélagar sem ekki taka þátt í mótinu eru hvattir til að mæta við verðlaunaafhendinguna, njóta góðra veitinga auk hins fallega útsýnis er  Golfskáli Keilis býður upp á.