Það er stór dagur hjá Haukum á morgun þegar 3.flokkur karla í knattspyrnu leikur til úrslita í Visa-bikar karla. Leikurinn fer fram klukkan 12:00 að Ásvöllum og eru andstæðingarnir Breiðablik úr Kópavogi.
3.flokks árgangurinn hefur slegið í gegn undanfarin ár og var til að mynda Íslandsmeistari í 4.flokki fyrir tveimur árum og hafa nú tryggt sér upp í A-riðil á næsta ári en þeir lentu í 2.sæti í B-riðlinum í sumar. Þjálfarar 3.flokks karla eru þeir Árni Hjörvar Hilmarsson og Þórhallur "kóngur" Dan Jóhannsson.



Knattspyrnudeild


Á dögunum unnu Hauka - hnáturnar í 6. flokki A liða úrslitakeppni Íslandsmótsins og fóru þær taplausar í gegnum mótið.Þessi frækni hópur hefur sigrað á fjórum mótum í sumar, en auk Íslandsmótsins hafa þær hampað bikar á Þróttaramótinu, Króksmótinu og Símamótinu.









