Forsala á undanúrslitaleik Hauka gegn Keflavík í Maltbikarnum á Ásvöllum

erreaHaukastelpurnar mun spila í undanúrslitum í Höllinni nk. miðvikudag, þann 8. febrúar, á móti Keflavík kl. 17:00.

Forsala á leikinn er hafinn og getur Haukafólk keypt miða í afgreiðslunni á Ásvöllum. Við hvetum allt Haukafólk til að kaupa miða í forsölu þar sem allir þeir miðar ganga beint til Hauka.

Miðinn á leikinn kostar kr. 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir börn.

Tilboð til Haukafólks – miði og Haukabolur fyrir forðna kr. 5.000 (erra bolur) og 3.000 fyrir börn. Bolur er eins og sést á mynd.
Þeir sem vilja kaupa bol þurfa þá að láta skrifa niður stærð á bolum og þeir verða tilbúnir mánudaginn 6. febrúar.

Að auki er hægt að panta miða (og bol) og fá afhent fyrir framan Höllina fyrir leik. þeir sem vilja fara þá leið geta sent póst á ivar@haukar.is

Við hvetjum allt Haukafólk til að gera sér ferð í Höllina nk. miðvikudag og hvetja stelpurnar áfram. Í síaðasta leik á móti Keflavík var Haukaliðið hársbreitt frá sigri og nú er rétti tíminn til að ná fram hagstæðum úrslitum.