Alexandra spilaði í sigurleikjum U17 gegn Skotum

Alexandra Jóhannsdóttir

Alexandra Jóhannsdóttir

Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður meistarflokks kvenna, spilaði á dögunum tvo vináttuleiki með U17 landsliði Íslands gegn Skotlandi.  Íslensku stúlkurnar unnu báða leikina nokkuð örugglega, annars vegar 3-0 og hins vegar 4-2.

Alexandra er 15 ára og hefur hún spilað 12 leiki fyrir U17 en hún skrifaði á dögunum undir samning við Knattspyrnudeild Hauka.

Næsta verkefni U17 er milliriðill fyrir úrslitakeppni en mótherjar Íslands í riðlinum eru Belgía, England og Serbía.