Afturelding kemur í heimsókn í bikarnum í kvöld

Það er stutt á milli stórleikjanna þessa vikuna því eftir Hafnarfjarðarslaginn á mánudag er strax komið að því að hugsa um næsta leik. Sá leikur er í kvöld, fimmtudag, þegar að Afturelding kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30 í 16 liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Þetta verður bikarslagur af bestu gerð þar sem að ekkert verður gefið eftir og því má ekkert Haukafólk missa af þessum leik. Við minnum á að þar sem að þetta er bikarleikur gilda Haukar í Horni kortin ekki á þennan leik og því er um að gera að mæta tímanlega í rauðu. Áfram Haukar!