Topplið 1. deildar mætir á Ásvelli á fimmtudaginn kl. 19:15

haukar01

Haukar fóru létt með Gróttu í síðasta heimaleik.

Það verður heldur betur barátta á Ásvöllum á fimmtudaginn þegar Þróttur R. mætir í heimsókn gegn okkar strákum sem hafa unnið síðustu tvo leiki og sína alla heimaleiki á þessu tímabili.  Leikurinn hefst kl. 19:15.

Haukar eru sem stendur í 6. sæti deildarinnar með 12 stig en Þróttarar eru á toppnum eins og áður segir með 21 stig.

Okkar strákar sigruðu Selfoss 0 – 1 á útivelli í síðustu umferð þar sem varnartröllið Gunnlaugur Fannar Guðmundsson skoraði sigurmarkið á 42 mínútu en Þróttur lagði Fjarðarbyggð 2-1 þannig að búast má við hörku leik.

Leikmenn hvetja stuðningsmenn Hauka að fjölmenna á Ásvelli á fimmtudaginn og sýna góðan stuðning eins og þeir hafa fengið í síðustu heimaleikjum.

Áfram Haukar!