Haukar – Fylkir kl. 14:00 á morgun í Schenkerhöllinni

Haukar vs. Fylkir, 13. umferð, Ásvellir, 24. jan. 15Á morgun, laugardag, heimasækja Fylkisstúlkur okkar konur í Schenkerhöllina og hefst leikurinn kl. 14:00. Fylkir er í 7. sæti deildarinnar en Haukar eru sem stendur í því 5. og hafa unnið alla sýna leiki eftir áramót. Haukarstelpur hittu ekki á góðan  dag þegar liðin mættust 23. september s.l. en þá töpuðu þær með 5 marka mun 27-22.  Haukastelpur eru staðráðnar að kvitta fyrir þetta tap og mæta tilbúnar í leikinn á morgun til að sýna allar sínar bestu hliðar. Við óskum eftir að þið sýnið stuðning í verki og mætið í Schenkerhöllina og hvetjið okkar lið til sigurs.

Áfram Haukar!