9. fl. dr. spilar til úrslita í bikarkeppni KKÍ sunnudaginn 17. febrúar kl. 10:00 í Höllinni.

Bikarhelgi KKÍ fer fram núna í laugardagshöllinni þar sem allir flokkar frá 9. fl. – mfl. karla og kvenna spila til úrslita.

Haukar eiga einn flokk sem spilar til úrslita og er það 9. flokkur drengja, árgangur 2004. Þessi árgangur hefur verið í stöðugri framförn, fengu silfur í íslandsmótinu í fyrra og hafa verið gríðarlega sterkir í vetur í sínum fjölliðamótum. Strákarnir hafa núna komist í úrslit í bikarkeppni og munu spila við lið Stjörnunnar en leikurinn er nk. sunnudag, þann 17. febrúar og hefst leikurinn kl. 10:00.

Við hvetjum allt Haukafólk til að gera sér ferð í Höllina og hvetja þessa ungu drengi áfram í baráttunni. Mætum í rauðu og hvetjum þessa flottu drengi áfram.