Á Gamlársdag verður hin árlega viðurkenningahátíð félagsins þar sem Íþróttakona, Íþróttamaður og Þjálfari ársins verða valin. Auk þess verða Haukafélagar, sem tekið hafa þátt í hinum ýmsu verkefnum sérsambandanna heiðraðir.
Hátíðin hefst kl. 12:30 og er í íþróttasalnum.
Léttar veitingar að hátíðinni lokinni.
Haukafélagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta.