Flugeldasala Hauka og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar

Eins og undanfarin ár munu Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Knattspyrnufélagið Haukar hafa með sér samvinnu um rekstur á einum af sölustöðum Björgunarsveitarinnar.

Sölustaður Hauka er á Tjarnarvöllum og hefst salan þann 28. desember n.k.
Styðjum við bakið á Björgunarsveit Hafnarfjarðar og verslum á Tjarnarvöllum.
Með því styrkjum við frábært starf Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og einnig okkar frábæra félag.

Áfram Haukar!