Vel sótt jólabingó Hauka

haukabing 2015Jólabingó Hauka var haldið í gær, sunnudaginn 6 desember og var mjög vel sótt og ljóst að fólk er að taka vel í þessa fjölskylduskemmtun í aðventunni.

Um 250 manns mættu í Schenkerhöllina til að spila bingó og var þétt setinn salurinn. Gaman var að sjá að fjölskyldur mættu vel, afar og ömmur með barnabörnin sem gerðu sér glaðan dag, fengu sér heitt kakó með rjóma og piparköku.

Bingóið tóks vel og fór fólk heim með bros á vör.

Haukar vilja þakka öllum sem mættu og öllum fyrirtækjum sem studdu félagið  með gjöfum.