Úrslitaleikur á Ásvöllum á föstudaginn kl. 19:15!

mfl_kvkStelpurnar í meistaraflokki kvenna voru að sjálfsögðu ferskar á æfingu í kvöld en þær eru þessa dagana að undirbúa sig undir úrslitaleikinn við Keflavík.

Leikurinn, sem fer fram á Ásvöllum á föstudaginn, ræður því hvort liðið spilar í Pepsí deildinni á næsta ári.

Keflavík vann fyrri leikinn 1-0 en stelpurnar hafa sýnt það oftar en einu sinni í sumar að þær eru magnaðar þegar mest á reynir.

Við ætlum að fjölmenna á Ásvelli á föstudaginn kl. 19.15 og hvetja stelpurnar okkar til sigurs.

Áfram Haukar!