Uppskeruhátið skokkhóps Hauka

HaukarHin stórfenglega uppskeruhátíð Skokhóps HAUKA er að bresta á!!!!
Vel yfir 70 manns hafa nú þegar boðað komu sína.

  • Við hittumst kát og hress á föstudagskvöld (21. Sept) á Ásvöllum (Forsalnum) kl. 20:00.
  • Við mætum í okkar fínasta pússi……..í þetta eina skipti er hlaupafatnaður bannaður!
  • Við mætum mörg hver með matföng af fjölbreyttustu sort.
  • Við fáum diskótekara.
  • Við veitum fullt af verðlaunum.
  • Við fáum skemmtiatriði.
  • Við fáum drykki á kostnaðarverði.
  • Við fáum að spjalla við mann og annan.
  • Við gleðjumst og höfum gaman af.
  • Við gortum og ræðum afrek ársins.

Allir hlaupaunnandi gleðipinnar eru byrjaðir að pússa dansskóna því þetta er skemmtuninn sem enginn vil missa af.

Umfram allt við njótum þess að vera til.

Laugardagsæfingin verður færð yfir á Sunnudag og þar mæta allir kl. 10:00……