Tómas Leó hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka

Tómas Leó Ásgeirsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næsta árs.

Tómas Leó er vel kunnugur á Ásvöllum, en hann spilaði 20 leiki með Haukum í sumar og varð markahæsti leikmaður Hauka í sumar með 14 mörk.

Tómas Leó er 22 ára, en þrátt fyrir ungan aldur hefur Tómas Leó spilað 97 meistaraflokksleiki en Tómas er uppalinn hjá Sindra á Höfn og byrjaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki aðeins 16 ára gamall.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Tómas Leó og bindur miklar vonir við hann á næst komandi tímabili.

Áfram Haukar

Þórarinn Jónas og Tómas Leó
Við undirskrift í dag. Mynd: Hulda Margrét
Tómas Leó Ásgeirsson og Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla. Mynd: Hulda Margrét

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…