Þriðji leikur strákana í Lengjubikarnum á sunnudaginn

 

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net

Meistaraflokkur karla mætir Víkingi Ólafsvík í þriðja leik sínum í riðli 3 A-deildar Lengjubikars karla á sunnudaginn.

Liðið er sem stendur í öðru sæti riðilsins með 3 stig eftir 2 leiki. Þar sem liðið sigraði Leikni Reykjavík í fyrstu umferðinni en beið lægri hlut gegn Stjörnunni í annari umferð.

Leikið verður í Akraneshöllinni og hefst leikurinn klukkan 16:00, við viljum hvetja sem flesta sem eiga tök á, að gera sér ferð upp á Skaga og styðja strákana okkar til sigurs. Áfram Haukar!

Leikjaplan liðsins í riðli 3 A-deildar Lengjubikarsins þetta árið.
sunnudaginn 25.feb 16:00 Haukar – Víkingur Ó. (Akraneshöllin)
laugardaginn 10. mars 12:00 Keflavík – Haukar (Reykjaneshöllin)
laugardaginn 17. mars 12:00 Haukar – Fjölnir (Gaman Ferða völlurinn)