Á mánudaginn kveðjum við jólin með hinni árlegu Þrettándagleði hér á Ásvöllum. Álfar, púkar og tröll verða á staðnum auk söngs og dans á sviði. Skemmtuninni sem hefst kl. 18 lýkur með veglegri flugeldasýningu kl. 19. Kakó og vöfflur í boði einnig stjörnuljós. Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.