Takk!

Knattspyrnudeild Hauka þakkar þeim fyrir komuna á Ásvelli sem mættu á ársþing KSÍ á laugardaginn. Við þökkum KSÍ fyrir traustið og samstarfið við að hýsa ársþingið.  Við þökkum okkar frábæru sjálfboðaliðum og leikmönnum í Haukum við framkvæmd ársþingsins.  Við óskum Vöndu Sigurgeirsdóttur og nýrri stjórn KSÍ til hamingju með kjörið og velfarnaðar í sínum störfum. Áfram íslenskur fótbolti!

Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, tóku við þakklætisvotti frá KSÍ.