Stórsigur hjá stelpunum

Meistaraflokkur kvenna, 2015

Meistaraflokkur kvenna

Í gærkveldi spiluðu stelpurnar í meistaraflokki Hauka við lið Grindavíkur.
Leikurinn var liður í Faxaflóamótinu þar sem lið Hauka keppir í B riðli.
Það er skemmst frá því að segja stelpurnar okkar unnu 9 – 1 stórsigur og spiluðu þær glimrandi vel og þá sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem Haukastelpur skoruðu 6 mörk gegn engu Grindavíkurliðsins.

Markaskorarar voru Heiða (4), Margrét (3) og Alexandra (2)

Með þessum sigri fylgdu þær eftir góðum leik gegn Skínanda í síðustu umferð sem fór 1-0 fyrir Hauka.

Haukar eru í 2. sæti riðilsins með 6 stig eftir 3 leiki þar sem þær hafa eingöngu tapað fyrir Álftanesi sem er með fullt hús stiga eftir 4 leiki.

Næsti leikur er á móti Keflavík í Reykjaneshöllinni, föstudaginn 26. febrúar, klukkan 20:20 og hvetjum við að sjálfsögðu alla stuðningsmenn til að mæta og styðja við bakið á þessu stórefnilega liði Hauka.

Áfram Haukar!!