Skólaskákmóti í eldri flokki lokið.

Einungis tveir þátttakendur kepptu um titil Skólaskákmeistara Hafnarfjarðar í eldri flokki.

Geir Guðbrandsson í Hvaleyrarskóla vann félaga sinn Kristján Ara Sigurðsson sem einnig er í Hvaleyrarskóla 2-0 í tveimur 25 mínútna atskákum.

Þeir hafa því báðir tryggt sér sæti á Kjördæmismóti Reykjaness í skólaskák sem haldið verður í Garðabergi, Garðabæ sunnudaginn 14. maí næstkomandi kl. 13. ásamt þeim Svanberg og Agli úr yngri flokki.