Skákæfing 28.nóvember 2006

Heldur var hún nú dræm mætingin á æfinguna í kvöld. Einungis 6 manns létu sjá sig og tókum við tvöfalda umferð. Lokastaðan varð eftirfarandi:

1. Þorvarður Fannar 9,5 af 10
2. Jón Magnússon 7,5
3. Stefán Pétursson 7
4. Guðmundur Guðmundss. 3
5. Ragnar Árnason 2,5
6. Kristján Ari 0,5

Varði hafði fullt hús fyrir síðustu umferðina. Þar mætti hann Jóni og hafði betur 1,5-0,5 í skákum þar sem Jón verður seint sakaður um heppni.

Næsta æfing fer fram að viku liðinni og hefur undirritaður enga trú á öðru en að betri mæting náist. 🙂