Síðasti leikur sumarsins hjá Meistaraflokki Karla

Nú er komið að því, síðasti leikur sumarins hjá Meistaraflokki karla í knattspyrnu árið 2018.

Strákarnir eru búnir að standa sig nokkuð vel í sumar og þurfa á öllum ykkar stuðning að halda fyrir síðasta leik sumarsins.  Strákarnir fá sterkt lið HK í heimsókn en HK er þegar búið að tryggja sæti í Pepsi-deildinni að ári og eru að keppa um deildarameistaratitilinn. Því verður um hörkuleik að ræða.

Leikurinn hefst klukkan 16:00 á Ásvöllum núna næstkomandi laugardag. Við hvetjum alla Haukamenn nær og fjær til að mæta á völlinn, styðja strákana og loka þessu knattspyrnusumri saman.

Áfram Haukar!

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net