Sæunn framlengir við Hauka og lánuð í Þrótt R.

Sæunn Björnsdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Hauka og gildir nýr samningur til 31. desember 2023.

Sæunn mun þó ekki spila með Haukum á komandi sumri heldur mun hún spila með Þrótti R. í efstu deild kvenna en sl. sumar spilaði hún með Fylki í sömu deild.

Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Sæunni og óskar henni góðs gengis með Þrótti R.

Sæunn Björnsdóttir
Ljósm. Hulda Margrét