Ragnheiður Þórunn skrifar undir samning við knattspyrnudeild Hauka

Ragnheiður er ein af efnilegustu knattspyrnukonum landsins í sínum aldursflokki en hún verður 16 ára gömul í nóvember nk. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún nú þegar spilað 29 leiki með meistaraflokki og er lykil leikmaður þar og hefur skorað 11 mörk. Í sumar hefur Ragnheiður spilað sjö leiki með meistarflokki kvenna í 2. deildinni og hefur hún skorað sex mörk. Ragnheiður á að baki fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands og níu leiki með U16 ára landsliðinu og hefur hún skorað tvö mörk.
Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Ragnheiði og það verður afar spennandi að fylgjast með hennar framþróun í sumar og á komandi árum.
Áfram Haukar!

Ragnheiður Þórunn

Ragnheiður Þórunn – Mynd: Hluda Margrét