Næstu leikir meistaraflokka Hauka í knattspyrnu

Meistaraflokkur kvenna spilar fimmtudaginn 27. apríl í Mjólkurbikarnum. KH kemur í heimsókn á Ásvelli og byrjar leikurinn kl 19:00.

Meistaraflokkur karla spilar úrslitaleik í Lengjubikarnum, föstudaginn 28. apríl. ÍR munu heimsækja Ásvelli og byrjar leikurinn kl 18:45.

Minnum á að grillið verður í fullum gangi fyrir leik þar sem boðið verður uppá hamborgara á vægu verði.

Hvetjum stuðningsfólk til að mæta á leikina!