Lokahóf knattspyrnudeildar & Lokaleikir meistaraflokka

Meistaraflokkar Hauka í knattspyrnu leika lokaleiki sína þetta tímabilið á morgun, föstudag, og á laugardag.

Þrátt fyrir að árangurinn hafi verið töluvert undir væntingum ætlum við Hauka fólk að hittast á Ásvöllum á laugardagskvöldið í lokahófi meistaraflokka; efla andann og þétta raðirnar!

Miðasala fyrir lokahófið er á Ásvöllum og hvetjum við stuðningsfólk til að tryggja sér miða.

Áfram Haukar!