Kristín Fjóla semur við knattspyrnudeild Hauka

Kristín Fjóla Sigþórsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til 31.12.2019.

Kristín sem er 18 ára á að baki 34 leiki með meistaraflokkum Hauka og Augnabliks og hefur hún skorað tvö mörk.

Að sögn Jakobs Leó Bjarnasonar, þjálfara meistaraflokks kvenna, er Kristín mjög vinnusöm og áræðin. ,,Hún vinnur vel fyrir liðið og leggur ávallt hart að sér fyrir liðið. Kristín er sterk innanvallar sem utan og er framtíðarleikmaður Hauka.“