Kraftur í knattspyrnudeild Hauka

Kæru Haukarar.

Það var erfiður dagur í gær en í dag er nýr dagur. Það er ljóst að meistaraflokkur karla mun spila í 2. deildinni á næstu leiktíð og það er auðvitað áfall fyrir okkur öll.  En þegar maður lendir í áfalli þá reynir auðvitað mest á mann og við höfum svo sannarlega tækifæri til að fara í ákveðna naflaskoðun þar sem okkur bíður spennandi og krefjandi verkefni. Við vorum í basli síðasta sumar og í enn meira basli í ár og það segir okkur að við verðum breyta ákveðnum hlutum til batnaðar.

Árangur beggja meistaraflokkana var undir væntingum og lendum við í nokkrum áföllum bæði karla og kvenna megin sem hafði ýmisleg áhrif. Seinni umferðin hjá meistaraflokki kvenna var frábær þar sem liðið náði 10 sigrum í 11 leikjum. Fjórða sætið staðreynd og nokkur ef og hefði hafa ansi oft komið upp í huga manns. Við eurm í spennandi verkefni sem heldur áfram á næsta ári og markmiðið er ljóst – að spila í efstu deild.

Varðandi leikmannahópana þá erum við með góðan kjarna og ungir og efnilegir leikmenn að koma upp beggja megin. Við erum með frábæra þjálfara í yngri flokkum, höfum verið með gott teymi í meistaraflokki kvenna síðustu tvö tímabil sem við getum byggt ofan á og erum að fara í spennandi vinnu varðandi ráðningu á þjálfara fyrir meistaraflokk karla.

Við erum með öfluga stjórn þar sem um er að ræða kröftuga einstkaklinga með víðtæka og ólíka reynslu.  Við ætlum okkur að skerpa á stefnu og sýn knattspyrnudeildar til framtíðar og þar spilar t.d. knattspyrnuhús á Ásvöllum stóran hlut sem mun breyta okkar aðstöðu á stórkostlegan hátt – hugsið ykkur hvað við getum gert þá miðað við alla þá einstkaklinga sem eru að fá tækifæri með yngri landsliðum í dag.

Yngri flokkar Hauka stóðu sig margir hverjir frábærlega í sumar. Má nefna að 5. flokkur kvenna lenti í 2. sæti á TM mótinu í Eyjum sem og á Símamótinu og stóð sig vel í Íslandsmótinu. 3. flokkur kvenna er kominn í fjögurra liða úrslit Íslandsmótsins og spilar úrslitaleikinn í bikarkeppni KSÍ fimmtudaginn 26. september nk. klukkan 18 á Ásvöllum þar sem mótherjinn er Stjarnan/Álftanes. 3. flokkur karla komst í undanúrslit í Íslandsmótinu og  4. og 2. flokkur stóðu sig vel í sumar en bæði lið léku í A riðli Íslandsmótsins.

Stjórn knattspyrnudeildar hefur mikinn metnað fyrir hönd leikmanna, frá meistaraflokki og niður í yngstu iðkendur, og við ætlum okkur einfaldlega að gera betur á öllum sviðum!  Haukar eru frábært félag með fjölmarga iðkendur þar sem meistaraflokkar eiga að spila í efstu deild og þangað stefnum við!

Áfram Haukar!

Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka

 

Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…