Kkd. Hauka og Gámaþjónustan sækja jólatréð heim til þín

Körfuknattleiksdeild Hauka, í samstarfi við Gámaþjónustuna, sækja jólatréð þitt heim að dyrum mánudaginn og þriðjudaginn 7.-8. janúar fyrir aðeins 2000 krónur.

Það er ekki mikið mál að nýta sér þjónustuna. Þú sendir póst tölvupóst á kkdhaukar@gmail.com með nafni, heimilisfangi og símanúmeri ásamt millifærslukvittun fyrir miðnætti sunnudaginn 6. janúar og við sækjum mánudaginn og þriðjudaginn 7.–8. janúar. Einnig er hægt að klára þetta í einni aðgerð inn á korfubolti.is.

Reikningsupplýsingar: 0133-26-13318, kt. 561105-0140

Nánari upplýsingar veitir Brynjar í síma: 8929901

Kkd. Hauka óskar Hafnfirðingum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

Áfram Haukar