Haukagolf 2001

Golfmót Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldið föstudaginn 10. ágúst nk. á hinum glæsilega 18 holu golfvelli Keilis á Hvaleyrinni. Fróðir menn erlendir jafnt sem innlendir telja Keilisvöllinn besta golfvöll landsins og þó víðar væri leitað.Ræst verður út milli klukkan 12.00 og 15.00, og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega. Hægt er að panta rástíma í síma 565-3360, en ekki er hægt að bóka á Netinu. Keppnisgjald er kr. 1.800,00.Aldurstakmark er 16 ára og eldri. Keppt verður um Rauða jakkann ásamt fjölda annarra glæsilegra vinninga. Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni. Keppendur með forgjöf 28-36 keppa á rauðum teigum. Verðlaunaafhending fer fram í golfskálanum á Hvaleyrinni að lokinni keppni.Haukafélagar eru hvattir til að taka þátt í mótinu og hitta gamla félaga í góðum félagsskap við iðkun hinnar göfugu golfíþróttar.