Evrópukeppnin

Haukar leika seinni leik sinn við Hollenska liðið Van der Vort Quintus á laugardaginn 15.september kl.18:00 á Ásvöllum. Hvetjum alla Haukara og aðra handboltaáhugamenn að mæta á fyrsta leik vetrarins og styðja íslenskan handknattleik. Strákarnir ætla að gera sitt besta því þeir ætla áfram í evrópukeppninni. Þeim veitir ekki af stuðningi áhorfenda því enginn leikur er unninn fyrirfram. Mætum og styðjum við bakið á strákunum.Áfram Haukar!!!