HANDBOLTAVEISLA NÆSTU HELGI

Haukar-U hefja leik á föstudaginn er þeir fá Val-U á Ásvelli. Leikurinn hefst kl. 19:30.

LOKSINS hefst deildin aftur hjá meistaraflokki kvenna á laugardaginn en þær fá lið Aftureldingar í heimsókn á Ásvelli og hefst sá leikur kl. 14:00. Haukastelpur hafa einungis spilað tvo leiki í deildinni, einn sigur og eitt jafntefli og sitja í 4. sæti.

Helgin endar á meistaraflokki karla í Hertzhöllinni á sunnudeginum kl. 18:00 er þeir leika gegn Gróttu. Haukastrákar sitja í 6. sæti eftir fjóra leiki, tveir sigrar, eitt jafntefli og eitt tap.

Eins og alltaf er mikilvægt að fá rauðklædda Haukafólkið okkar, unga sem aldna, í stúkuna og styðja meistaraflokkana og ungmennaliðið áfram til sigurs!

FRÍTT inn fyrir Hauka í Horni og iðkendur á leikina sem fara fram á Ásvöllum.