Golfmót Hauka 2021 – Úrslit

32. Haukamótið fór fram á golfvellinum á Hvaleyrinni föstudaginn 17. september sl. Veður var þokkalegt lungan úr deginum þótt þungbúið hafi verið þegar fyrstu kylfingar voru ræstir út kl. 9 um morguninn.Völlurinn var í toppstandi. Ágætis þátttaka var á mótinu, hátt í 100 golfspilarar af báðum kynjum.

Úrslit á  mótinu urðu þau að Snorri Páll Ólafsson hlaut Haukakönnuna. Snorri lék Hvaleyrarvöllinn á 75 höggum eða fjórum yfir pari. Ársæll Steinmóðsson kom  sá og sigraði að þessu sinni. Ársæll gerði sér lítið fyrir og vann Rauða jakkann í punktakeppni á 39 punktum og einnig Gula boltann á 39 punktum í flokki 55 ára og eldri. Í öðru sæti í punktakeppninni var Ægir Sigurgeirsson einnig á 39 punktum og í 3ja sæti hafnaði Hafdís Hafberg á 38 punktum. Næstir holu urðu eftirtaldir spilarar: Á 4. holu Jón Gunnar Þórisson, á 6. holu Tryggvi Jónsson, á 10. holu  Viðar Jónsson og á 15. holu Bryndís Garðarsdóttir.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…